Siglufjörður verður að teljast einn litríkasti og fallegasti bæ landsins. Öll saga, fallega hafnarsvæðið og öll litríku húsin sem taka á móti þér þegar þú keyrir út um Strákagöng eru svo heillandi! Gisting á Hótel Sigló, heimsókn á Síldarminjasafnið og síðan matur, drykkur og huggulegt kvöld á höfninni með stórkostlegt útsýni – gerist ekki mikið betra!
Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga og hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu áhrifum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en eru ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.
Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.
HN Gallery er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem leitast eftir því að styrkja íslenska hönnun. Með samstarfi við fjölda íslenskra fyrirtækja munum við bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval af framúrskarandi hönnunarvörum þar sem lagt er áherslu á gæði og nýsköpun.