“dóttir”
Falleg hálsmen með einfaldri en þýðingarmikilli áletrun. Að vera dóttir er eitthvað sem við konur eigum allar sameiginlegt hvort sem það kemur fram í eftirnafninu okkar eða ekki. Orðið “dóttir” hefur á síðari árum orðið tákn víða um heiminn fyrir konur sem standa með sjálfum sér og fara sínar eigin leiðir.
Hálsmenin eru úr stáli sem er frábært efni þar sem það fellur ekkert á þau.
Keðjan er 50cm löng með 4cm framlengingu.
HN Gallery er íslenskt hönnunar fyrirtæki sem leggur mikla vinnu í hönnun og framleiðslu á vörum sem eru einstakar fyrir fyrirtækið og viðskiptvini þess, einnig erum við í samstarfi með yfir 22 íslenskum fyrirtækjum. Það er okkar markmið að framleiða og bjóða fram gæðavöru sem nýtist vel og hlýjar viðskiptavinum okkar á köldum dögum.