Lovi Stjarna
Falleg og tímalaus stjarna frá finnska hönnunarmerkinu Lovi sem færir heimilinu hlýja og stílhreina norræna stemningu. Einföld hönnun sem passar jafnt sem jólaskraut, borðskraut eða fallegt smáatriði á heimilinu allt árið.
Stjarnan er framleidd úr finnskum birkikrossvið og kemur í flatri pakkningu sem er bæði skemmtileg og einföld að setja saman án líms eða verkfæra.
Upplýsingar
- Efni: Finnskur birkikrossviður
- Kemur í flatri pakkningu
- Auðvelt að setja saman
- Hönnuð og framleidd í Finnlandi
- Val: 1 stk eða 4 stk í setti
Fallegt norrænt skraut sem setur mjúkan og hlýjan svip á heimilið.


