Moomin bolli – Norðurljósin
Upplifðu töfra norðurljósanna með Moominálfunum! Norðurljósin dansa á næturhimninum og skapa einstaka stemningu sem minnir okkur á fegurð náttúrunnar og litlu augnablikin sem vert er að njóta.
Bollinn hentar bæði fyrir heita og kalda drykki og er fullkominn í útileguna, vinnuna eða fyrir notalega kaffistund heima.
- Falleg og endingargóð hönnun frá Muurla í Finnlandi
- Léttur og sterkur - nánast óbrjótanlegur stálbolli
- Gerður úr matvælastáli með glerjungi - emaleraður
- Má fara í uppþvottavél, en glansinn getur þó dofnað með tímanum
- Stærð: 3,7 dl
Frábær gjöf fyrir alla Moomin-aðdáendur og þá sem elska norðurljósin eða einfaldlega fallegan og vandaðan bolla fyrir sjálfan sig.


