Stöplar - íslensk vörulína
STÖPLAR er íslensk vörulína frá HN Gallery.
Vörulínan samanstendur af pólýhúðuðum kertastjökum með segli og er fáanleg í sex mismunandi stærðum. STÖPLAR koma í þremur hæðum og tveimur breiddum og eru seldir í stykkjatali, sem gerir þér kleift að raða þeim saman eftir eigin smekk og skapa þína eigin uppsetningu.
Allt ferlið er unnið á Íslandi – íslensk hönnun, íslensk járnsmíði, íslensk pólýhúðun og íslenskar umbúðir.
Hluti kertastjakanna er sérhannaður utan um íslenska kertaframleiðslu, þar sem kertin eru í extra breiðum stærðum. Kertin eru einnig fáanleg hjá HN GALLERY.







