Stuðlabergshúfa
Yndislega mjúk og hlý húfa sem er saumuð úr vandaðri ullarblöndu sem er vélprjónuð hér á Íslandi. Húfan er með tvöföldum kanti sem veitir aukna hlýju og þægindi á köldum dögum.
Mynstrið er innblásið af hinu einstaka íslenska stuðlabergi í Kálfshamarsvík og sameinar fallega íslenska náttúru, hlýju og tímalausa hönnun.
Húfuna má þvo á ullarprógrammi í þvottavél, sem gerir hana bæði praktíska og auðvelda í umhirðu.
Eiginleikar:
- Saumuð úr vélprjónaðri ullarblöndu
- Mjúk, hlý og þægileg
- Tvöfaldur kantur fyrir aukna hlýju
- Hægt að þvo á ullarþvotti í þvottavél
- Mynstur innblásið af stuðlaberginu í Kálfshamarsvík
- Íslensk hönnun og framleiðsla

