Kaðlahúfan - Þoka
Handprjónuð kaðlahúfa úr alpakkaull
Vönduð handprjónuð kaðlahúfa úr mjúkri alpakkaull sem heldur litlum höfðum hlýjum á köldum dögum. Húfan er einstaklega mjúk, hlý og heldur lögun sinni vel, sem gerir hana þægilega í daglegri notkun.
Húfan er með fallegum ekta dúsk sem auðvelt er að smella af áður en hún er þvegin. Þannig má þvo húfuna á ullarprógrammi í þvottavél án þess að skemma dúskinn.
Hver dúskur er einstakur og því eru engar tvær húfur nákvæmlega eins.
Eiginleikar:
- Handprjónuð úr mjúkri alpakkaull
- Hlý, mjúk og heldur sér vel
- Stærð: ca. 6 mánaða - 2 ára
- Ekta dúskur sem hægt er að smella af
- Má þvo á ullar prógrammi eftir að dúskurinn hefur verið fjarlægður
- Hver dúskur er einstakur
- Íslensk hönnun og framleiðsla

