Bylgjuskál – með steináferð

4.242 kr 4.990 kr

Bylgjuskál - ljós steináferð

Falleg handgerð steypt skál með mjúku bylgjulaga formi sem gefur henni lifandi og náttúrulegt yfirbragð. Þessi útgáfa er spreyjuð með léttri, ljósri steináferð sem undirstrikar formið og gefur skálinni mjúkt og rólegt útlit. 

Bylgjuskálin hentar vel sem skrautskál, undir smáhluti, skartgripi hvort sem það er á borði eða í hillu. 

Helstu eiginleikar: 

  • Handgerð vara
  • Efni: Steypa með ljósri steináfer (Spreyhúðun)
  • Hæð: 4,5cm 
  • Bylgjulaga hönnun
  • Hentar vel sem skrautskál eða undir smáhluti
  • Hvert eintak er einstakt

Athugið: þar sem um handgerða vöru er að ræða geta smávægilegar breytingar verið á útliti og stærð.

Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.

Litur
14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent