Kertasandur & Novi Bakki - hvítur

10.608 kr 12.480 kr

Novi er einstök hönnun sem varð til í samstarfi Fangaverks og HN Gallery. Úr varð fallegur og tímalaus bakki sem sameinar handverk og nútímalega hönnun á mjúkan og elegant hátt.

Bakkinn einkennist af fallegum, mjúkum línum sem gefa honum hlýlegt og fágað yfirbragð. Hann hentar vel á borð, í stofuna eða herbergið og setur stílhreinan svip á rýmið. Einnig er hann tilvalinn undir kertasand frá HN Gallery og hjálpar við að skapa notalega og samræmda stemmningu. 

Helstu eiginleikar: 

  • Samstarf Fangaverks og HN Gallery 
  • Efni: Steypa og sprey
  • Litur: Hvítur
  • Lengd: 30cm
  • Breidd: 16cm 
  • Fallegar og mjúkar línur
  • Hentar vel á borð, hillur og undir kertasand
  • Handgerð vara

Umhirða: Einungis má þurrka af bakkanum með rökum klút. Ekki má setja hann undir vatn. 

Athugið: Þar sem um handgerða vörur er að ræða geta stærðir verið örlítið breytilegar

Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.

 

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent

Kertasandur – ný og falleg leið til að njóta kerta

Breyttu hvaða skál sem er í glæsilegt kerti á augabragði. Helltu kertasandinum í skál, settu kertaþráðinn í og kveiktu – einfalt, fallegt og fullkomið til að skapa hlýlega stemningu á heimilinu.

Stílhreint, tímalaust og einstaklega auðvelt í notkun. Ný og spennandi leið til að upplifa kertaljós.