Vekjaraklukka - Flip mini khaki

6.990 kr

Margverðlaunaða Flip vekjaraklukkan frá LEXON kemur hér í minni og nettari útgáfu – jafn vönduð, en enn þægilegri fyrir náttborðið eða ferðalög. Einföld hönnun sem gerir morguninn skýrari og rólegri.

Við mælum með að gefa snjalltækjunum frí frá svefnherberginu. Síminn þarf ekki að vera það fyrsta sem þú sérð á morgnana eða það síðasta áður en þú ferð að sofa – skildu hann eftir frammi og njóttu betri svefns.

Notkunin er einföld og snjöll:
Snúðu ON hliðinni upp til að virkja vekjarann og OFF hliðinni upp til að slökkva á honum. Ef þú vilt sofa aðeins lengur er nóg að snerta klukkuna til að snooza.

Klukkan er með LCD skjá sem lýsist upp við snertingu og aftan á henni eru takkar til að stilla tíma og vekjara. Hún er klædd mjúku silicon gúmmíi sem gefur henni nútímalegt og hlýlegt útlit.

✔ Mini stærð – fullkomin á náttborð eða í ferðalagið
✔ Snúðu til að kveikja/slökkva á vekjara
✔ Snooze með léttri snertingu
✔ LCD skjár með baklýsingu
✔ Efni: silicon gúmmí
✔ Gengur fyrir 2 x AAA rafhlöðum (fylgja með)

Lítil, snjöll og stílhrein – fullkomin fyrir einfaldari morgna.



14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent