Marimekko – Unikko Gull Servíettur

990 kr

Unikko Gull Servíettur

Glæsilegar Unikko servíettur frá Marimekko sem sameina tímalausa finnska hönnun og fallega gyllta tóna. Hið ikoníska Unikko-mynstur, hannað af Maiju Isola árið 1964 setur fágaðan svip á borðið og hentar jafnt fyrir hátíðleg tilefni sem og fallegar samverustundir.

Servíetturnar eru framleiddar í Finnlandi af Havi úr mjúkum þriggja laga pappír. Þær bera bæði Lykilfánann og Norræna Svaninn sem staðfestir vandaða og umhverfisvæna framleiðslu.

Upplýsingar

  • Unikko mynstur í gylltum tónum
  • Stærð: 33 × 33 cm
  • 20 servíettur í pakka
  • Þriggja laga pappír
  • Hönnuður: Maija Isola
  • Framleitt í Finnlandi
  • Vottað með Key Flag og Nordic Swan Ecolabel

Fallegt smáatriði sem skapar hlýlegt og fágað yfirbragð - Fullkomnar fyrir veislur, hátíðir eða bara hversdags.

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent