Kertahús - blómaengi
Falleg handunnin postulíns kertalukt sem skapar hlýlegt og notalegt yfirbragð á heimilinu. Fíngert blóma og laufa mynstrið hleypir mjúkri birtu í gegnum postulínið og fyllir rýmið fallegri stemningu.
Húsið er hannað af Räder, þýsku hönnunarfyrirtæki sem er þekkt fyrir tímalausa hönnun, vönduð gæði og fallega hluti sem skapa hlýlegt yfirbragð á heimilinu.
Eiginleikar:
• Stærð: 7 × 7 × 13 cm
• Handunnið úr hágæða postulíni
• Blóma og laufa mynstur sem skapar fallega birtu
• Fallegt eitt og sér eða sem hluti af Village House safninu
Athugið: Ljósgjafi fylgir ekki með. Mælt er með notkun LED-kerta til að vernda postulínið.


