Kertasands - Station 🕯️
Kertasands Station – búðu til þitt eigið kerti
Nú getur þú komið til okkar og búið til þitt eigið kerti. Veldu krukku og fylltu hana með kertasandi frá Aurora Candles, einum ilmi eða blandaðu saman þínum uppáhalds. Útkoman er kerti sem er alveg þitt.
Get ég verslað sandkertið í vefverslun? Engar áhyggjur, við búum kertið til fyrir þig! Veldu ilminn eða blönduna sem þú vilt og við gerum kertið tilbúið og sendum það til þín.
Kertasandurinn er auðveldur í notkun. Þú hellir honum í krukkuna, stingur þræði ofan í og kveikir svo á - það fylgja svo 5 auka þræðir með.
Fullkomið sem persónuleg gjöf eða smá dekur fyrir þig sjálfa/n ✨
📍 Kertasands Station er í verslun okkar á Faxatorgi, Faxafeni 10.
.

