Mánaðarspjöld
Mánaðarspjöld – Fyrsta árið
Fyrsta árið í lífi barns er fullt af litlum og stórum augnablikum sem líða hratt hjá en lifa áfram í minningum. Brosið, fyrstu hreyfingarnar og allur þessi dýrmæti tími – augnablik sem vert er að varðveita 🤍
Mánaðarspjöldin eru hönnuð til að fylgja barninu í gegnum fyrsta árið og gera þér kleift að festa þessa einstöku tíma á mynd á fallegan og einfaldan hátt. Fullkomin fyrir mánaðarlegar myndatökur sem þú getur átt og horft til baka á um ókomin ár.
Upplýsingar:
- Prentuð á vandaðan 300 gr pappír
- Stærð: 13 x 18 cm
- 13 kort í pakka (1 mánuður – 1 árs)
- Fæðingarspjald fylgir með til að skrá nafn, fæðingardag, lengd og þyngd
Falleg leið til að varðveita fyrstu og dýrmætustu minningarnar ✨






