Vekjaraklukka - Flip classic orange
Margverðlaunaða Flip vekjaraklukkan frá LEXON er bæði vönduð og einstaklega einföld í notkun. Snjöll hönnun sem gerir morgunrútínuna auðveldari og skemmtilegri.
Við mælum með að gefa snjalltækjunum frí frá svefnherberginu. Síminn þarf ekki að vera það fyrsta sem þú sérð á morgnana eða það síðasta áður en þú ferð að sofa – skildu hann eftir frammi og njóttu rólegri byrjunar á deginum.
Það er einstaklega einfalt að nota klukkuna:
Snúðu ON hliðinni upp til að virkja vekjarann og OFF hliðinni upp til að slökkva á honum. Ef þú vilt sofa aðeins lengur er nóg að snerta klukkuna til að snooza.
Klukkan er með LCD skjá sem lýsist upp við snertingu og aftan á henni eru takkar til að stilla tíma og vekjara. Hún er klædd mjúku silicon gúmmíi sem gefur henni nútímalegt og hlýlegt útlit.
✔ Einföld og snjöll notkun – snúðu til að kveikja/slökkva
✔ Snooze með léttri snertingu
✔ LCD skjár með baklýsingu
✔ Efni: silicon gúmmí
✔ Gengur fyrir 2 x AAA rafhlöðum (fylgja með)
✔ Stærð: 2,8 cm (hæð) x 10,2 cm (breidd) x 6,4 cm (dýpt)
Fullkomin blanda af hönnun og notagildi – fyrir betri byrjun á deginum.




