Lovi Kindur
Lovi Sheep vörulínan er fallegt og hlýlegt safn viðarskrauts sem færir heimilinu náttúrulegan og notalegan sjarma
Í línunni má finna hrút, kind og lamb sem saman mynda fallega kindafjölskyldu með mjúkum línum, kringlóttu formi og hlýlegri viðaráferð sem gerir hvert stykki einstakt.
Vörurnar eru fáanlegar í fallegum litum og mismunandi stærðum sem passa fullkomlega inn í hvaða rými sem er — hvort sem þær standa saman sem hluti af fallegri uppröðun eða sitt í hvoru lagi sem hlýlegt smáatriði á hillu, borði eða í barnaherbergi
Framleiddar úr FSC-vottuðum finnskum birkikrossvið í verksmiðju Lovi í Finnlandi þar sem lögð er áhersla á gæði, sjálfbærni og tímalausa norræna hönnun.
• Framleiddar úr finnskum birkikrossvið
• FSC-vottað efni
• Fást í mismunandi litum og stærðum
• Hannaðar og framleiddar í Finnlandi
Lovi Sheep vörulínan er falleg gjafahugmynd fyrir náttúruunnendur, hönnunaráhugafólk eða þá sem vilja bæta hlýlegum og einstökum smáatriðum inn á heimilið
Allar vörurnar koma flatpakkaðar og eru bæði einfaldar og skemmtilegar að setja saman.
🐑🤍Lovi kindin – tilvalin gjöf fyrir alla!
Lovi kindin er skemmtileg og falleg hönnun sem passar inn á hvert
heimili. Hún kemur í flatri pakkningu og þú setur hana saman sjálf/ur,
það er því ekki síður gaman að skapa hana en að njóta hennar þegar hún
er tilbúin.
Falleg sem skraut, skemmtileg að setja saman og öðruvísi gjöf sem gleður
bæði unga sem aldna.✨



