Kaðlahúfan - Blóðberg
Handprjónuð kaðlahúfa úr merino ull
Vönduð og falleg handprjónuð kaðlahúfa úr mjúkri merino ull sem heldur vel hita á köldum dögum. Húfan er hlý, einstaklega mjúk og heldur lögun sinni vel, sem gerir hana að frábærum félaga í íslensku veðri.
Húfan er skreytt ekta dúsk sem auðvelt er að smella af áður en húfan er þvegin. Þannig má þvo húfuna á ullarprógrammi í þvottavél án þess að skemma dúskinn.
Engar tvær húfur eru alveg eins, þar sem hver dúskur er einstakur og gefur húfunni sinn eigin persónulega svip.
Eiginleikar:
- Handprjónuð úr mjúkri merino ull
- Hlý, mjúk og heldur sér vel
- Ekta dúskur sem hægt er að smella af
- Hægt að þvo á ullar prógrammi eftir að dúskurinn hefur verið fjarlægður
- Hver dúskur er einstakur
- Íslensk hönnun og framleiðsla

