Hárband
Handprjónað hárband úr merino ull
Fallegt og hlýtt handprjónað hárband úr hágæða merino ull sem heldur vel á þér hita á köldum dögum. Merino ullin er einstaklega mjúk, létt og þægileg viðkomu og hentar því vel til daglegra nota.
Ullin er forþvegin og meðhöndluð á sérstakan hátt sem gerir hana sérstaklega mjúka og hentuga fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir ull. Hárbandið er því þægilegt í notkun án þess að klæja.
Eiginleikar:
- Handprjónað úr hágæða merino ull
- Hlýtt, mjúkt og þægilegt
- Forþvegin merino ull
- Hentar vel þeim sem eru viðkvæmir fyrir ull
- Íslensk hönnun og framleiðsla


