Hringlaga ílát með loki
Fallegt handgert box frá Fangaverk sem hentar einstaklega vel undir gróft salt eða önnur smáatriði í eldhúsinu. Boxið er falleg viðbót á eldhúsborðið og hentar vel fyrir þá sem kunna að meta íslenskt handverk og einfaldan stíl.
Við erum einnig með flotta bakka frá Fangaverk sem passa fullkomlega með!
Upplýsingar:
- Litur: svartur
- Tilvalið t.d. undir grófa saltið!
- Hæð: 5 cm
- Breidd: 7 cm
Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.
(athugið að þetta eru handgerðar vörur og stærðir geta verið breytilegar)


