Kjötbretti
Kjötbretti úr beyki - brennt
Stílhreint og sterkt kjötbretti úr beyki með fallegu brenndu yfirborði sem gefur því hlýlegt yfirbragði. Fullkomið til framreiðslu á kjöti, ostum, smáréttum eða veisluréttum þar sem framsetning skiptir máli.
Náttúruleg áferð viðarins og brennda yfirborðið gera hvert bretti einstakt og gefa því persónulegan karakter sem passar vel á bæði veisluborð og í daglega notkun.
Upplýsingar
- Efni: Beyki (brennt yfirborð)
- Lengd: 35 cm
- Breidd: 23 cm
- Hentar fyrir framreiðslu á kjöti og smáréttum
- Tímalaus hönnun
- Handgerð vara – stærðir og áferð geta verið örlítið breytileg
Fallegt, hagnýtt og með merkingarbæran bakgrunn.
Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.
(athugið að þetta eru handgerðar vörur og stærðir geta verið breytilegar)


