Pizzabretti
Pizzabretti úr beyki – brennt
Glæsilegt pizzabretti úr beyki með brenndu yfirborði sem gefur því hlýlegt og lifandi útlit. Fullkomið til að bera fram pizzur á fallegan og áhrifaríkan hátt, hvort sem er í veislum eða notalegum kvöldverði heima.
Hvert bretti er einstakt þar sem brennslan getur verið mismunandi og undirstrikar þannig náttúrulegan karakter viðarins.
Upplýsingar
- Efni: Beyki (brennt yfirborð)
- Stærð: 32 cm á breidd
- Hentar fyrir pizzur og framreiðslu
- Hvert bretti er einstakt í áferð og brennslu
- Handgerð vara - stærðir geta verið örlítið breytilegar
Fallegt, hagnýtt og með merkingarbæran bakgrunn.
Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.
(athugið að þetta eru handgerðar vörur og stærðir geta verið breytilegar)


