Lítið sjávarþorp sem skartar einni af fegurri kirkjum landsins. Vingjarnlegur bær sem talinn er elsta byggð á Íslandi! Náttúruperlur, hvalaskoðun og kvöldstund á Gamla Bauk, með fallegt útsýni yfir sjóinn og höfnina – getur bara ekki klikkað!
Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.
Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.
Faxatorg - Faxafen 10
108 Reykjavik
Sími: 868-0626
hngallery@hngallery.is
Opnunartímar í verslun
Mánudaga - Föstudaga 12-18
Laugardagar 12-16