Staður sem ég bjóst seint við að búa á, en hefur heldur betur tekið vel á móti okkur! Fjölbreytt mannlíf, vingjarnlegt fólk og allt til alls á sviði menningar og verslunar. Falleg gömul hús sem hafa fengið nýtt líf, fjalladýrð, mannlíf í kringum höfnina, útivist, gönguskíði og fjallahjól – algjör paradís umvafin náttúrufegurð Vestfjarðanna.
Bærinn minn er veggspjalda sería sem hefur það að markmiði að fanga anda hvers staðar á skemmtilegan og rómantískan hátt, með myndskreytingum af helstu kennileitum sem saman mynda fallega heildarmynd. Veggspjaldið sómar sér vel á heimilum bæjarbúa en er ekki síður frábær tækifærisgjöf fyrir brottflutta sem vilja minnast heimahaganna.
Athugið að veggspjaldið er án ramma.
Hægt að velja um stærð A4(21x30cm) eða 30x40cm.
Prentað á hágæða Canon ljósmyndapappír.
HN Gallery er íslenskt hönnunar fyrirtæki sem leggur mikla vinnu í hönnun og framleiðslu á vörum sem eru einstakar fyrir fyrirtækið og viðskiptvini þess, einnig erum við í samstarfi með yfir 22 íslenskum fyrirtækjum. Það er okkar markmið að framleiða og bjóða fram gæðavöru sem nýtist vel og hlýjar viðskiptavinum okkar á köldum dögum.