"dóttir"
Falleg hálsmen með einfaldri en þýðingarmikilli áletrun. Að vera dóttir er eitthvað sem við konur eigum allar sameiginlegar hvort sem það kemur fram í eftirnafninu okkar eða ekki. Orðið “dóttir” hefur á síðari árum orðið tákn víða um heiminn fyrir konur sem standa með sjálfum sér og fara sínar eigin leiðir.
Hálsmenin eru úr stáli sem er frábært efni þar sem það fellur ekkert á þau.
Keðjan er 50cm löng með 4cm framlengingu.
HN Gallery er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem leitast eftir því að styrkja íslenska hönnun. Með samstarfi við fjölda íslenskra fyrirtækja munum við bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval af framúrskarandi hönnunarvörum þar sem lagt er áherslu á gæði og nýsköpun.