Kertasandur & skál á fæti
HN GALLERY x FANGAVERK
Í gegnum árin höfum við verið í nánu samstarfi við Fangaverk & brallað margt skemmtilegt í samvinnu við þau. Hér kemur nýjasta samvinnuverkefnið okkar!
Kertasandurinn okkar vinsæli & sjóðheit ný vara frá þeim steypt skál á fæti.
Tvenna sem fer vel á hverju heimili!
Hönnun með tilgang - með því að kaupa þessa vöru ertu ekki aðeins að skreyta heimilið þitt, þú ert að gefa einhverjum annað tækifæri.
Fyrir þá sem þekkja ekki verkefnið - þá eru vörur Fangaverks framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.