Járnbakki - lítill
Fallegur og stílhreinn handgerður járnbakki frá Fangaverk. Bakkinn er sprautaður með möttum svörtum lit sem gefur honum nútímalegt og fágað yfirbragð.
Bakkinn hentar vel undir kerti, skrautmuni og aðra smáhluti og er falleg viðbót við heimilið. Einföld og tímalaus hönnun sem passar vel inn á flest heimili.
Stærð: 20 × 15 cm
Efni: Járn
Litur: Mattur svartur
Framleiðsla: Handunnið á Íslandi
Vörur Fangaverks eru framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.
(athugið að þetta eru handgerðar vörur og stærðir geta verið breytilegar)



