Jólatré - led
Räder – Fir Trees postulínstré
Falleg Fir Trees postulínstré frá Räder sem skapa hlýlega og töfrandi stemningu á heimilinu. Trén eru einföld í formi með fíngerðum útskurði sem hleypir LED-ljósinu í gegn og myndar fallegan ljósaleik á borði, vegg og lofti.
Trén eru einstaklega falleg saman og fullkomin til að skapa lítið vetrarlandslag en þau passa einnig fallega með öðrum hlutum úr postulínsþorpinu frá Räder.
Upplýsingar
- 3 postulínstré í mismunandi stærðum
- Efni: Postulín og LED-ljós
- Stærðir: 7,5 cm, 9,5 cm og 11 cm á hæð
- Rafhlöðuknúin LED-eining
- Rafhlöður: LR44 fylgja með
- Hönnuður: Indigo Ruh
Falleg og tímalaus skreyting sem færir heimilinu mjúka birtu og notalega vetrarstemningu - fullkomin yfir jól og allan veturinn.





