Kertasandur & Novi Bakki - hvítur
Novi petit - Hvítur með steináferð
Novi petit er minni útgáfa af vinsæla Novi bakkanum okkar sem varð til í samstarfi Fangaverks og HN Gallery. Hann sameinar handverk og nútímalega hönnun á mjúkan og elegant hátt.
Bakkinn einkennist af fallegum línum sem gefa honum hlýlegt og fágað yfirbragð. Hann hentar vel á borð, í stofuna eða herbergið og er tilvalinn undir kertasandinn okkar, skartgripi, lykla eða aðra smáhluti.
Helstu eiginleikar:
- Samstarf Fangaverks og HN Gallery
- Efni: Steypa og sprey
- Litur: Hvítur með steináferð
- Lengd: 25cm
- Breidd: 15cm
- Fallegar og mjúkar línur
- Hentar vel á borð, hillur og undir kertasand
- Handgerð vara
Umhirða: Einungis má þurrka af bakkanum með rökum klút, ekki setja beint undir vatn.
Athugið: Þar sem um handgerða vöru er að ræða geta stærðir og áferðir verið örlítið breytilegar, sem gera hvern bakka einstakan.
Kertasandur – ný og falleg leið til að njóta kerta
Breyttu hvaða skál sem er í glæsilegt kerti á augabragði. Helltu kertasandinum í skál, settu kertaþráðinn í og kveiktu – einfalt, fallegt og fullkomið til að skapa hlýlega stemningu á heimilinu.
Stílhreint, tímalaust og einstaklega auðvelt í notkun. Ný og spennandi leið til að upplifa kertaljós.











