Kertasandur & Skel - large

19,980 kr

Það er fátt notalegra en hlýlegt kertaljós þegar haustið læðist inn. 🤎 Með kertasandi getur þú breytt uppáhaldsskálinni þinni í fallegt kerti á einfaldan hátt. Helltu sandinum í skálina, settu kertaþráðinn í og kveiktu – einfalt, fallegt og notalegt.

Þegar þráðurinn hefur brunnið upp er auðvelt að skipta um hann og kertið verður eins og nýtt á ný. Kertasandurinn er unninn úr náttúrulegu pálmavaxi í formi lítilla perla, kemur með kertaþráðum og er 400 g.

Skeljaskálin er falleg og tímalaus og setur skemmtilegan svip á heimilið. Hún er fullkomin undir kertasandinn en er einnig fjölhæf og hentar vel undir sælgæti, skartgripi eða aðra smáhluti. Með fallegu skeljalaga formi og stílhreinni hönnun passar hún inn á hvert heimili.

Falleg og notaleg samsetning sem á svo sannarlega heima á haustin.

• Kertasandur úr náttúrulegu pálmavaxi
• Kertaþræðir fylgja með
• Auðvelt að skipta um brenndan þráð
• Kertasandur: 400 g
• Skeljaskál stærð: 34 × 24 × 9,5 cm
• Tímalaus og fjölhæf hönnun

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent