Kreafunk - Ampie wired
Ampie Wired sameinar hagnýta rafmagnstengingu og fallega hönnun í einu og sama tækinu. Með þremur EU-innstungum, tveimur USB-A og tveimur USB-C tengjum er auðvelt að hafa öll helstu tækin tengd á einum stað - hvort sem það er lampi, hátalari, sími, fartölva eða annað.
USB-C tengin styðja hraðhleðslu allt að 25W og heildarafl er allt að 3680W, sem gerir Ampie Wired að frábærum kosti fyrir bæði daglega notkun heima sem og á skrifstofunni.
Ampie Wired er hannað í Danmörku og framleitt úr endurunnum efnum með áherslu á vandaða hönnun og umhverfið. Fallegir litir og fágað útlit gera tækið að hönnunarhlut sem þú vilt hafa sýnilegt, í stað þess að fela rafmagnslista og hleðslutæki.
Ampie Wired - rafmagn með stíl, virkni og fallegri hönnun.
Helstu eiginleikar:
- 3 × EU-innstungur
- 2 × USB-A
- 2 × USB-C
- Hraðhleðsla allt að 25W
- Heildarafl allt að 3680W
- Hannað í Danmörku
- Framleitt úr endurunnum efnum



