LED kerti - The Pond

2,990 kr
Vörunúmer: Muurla-870
6416114969876

Moomin Originals x Muurla - LED kerti

Fallegt LED kerti úr Moomin Originals x Muurla línunni, með upprunalegri myndskreytingu eftir Tove Jansson þar sem Múmínsnáðinn er í aðalhlutverki.

Kertin eru hönnuð sérstaklega til að draga fram myndskreytingarnar. Hlýtt LED ljósið flöktir eins og raunverulegur logi, lýsir upp mynstrið og skapar notalega stemningu á heimilinu. Kertið er mótað eftir klassískum stearínkertum og er fallegt skraut, hvort sem það stendur eitt og sér eða í uppstillingu.

6 klst. tímastillir gerir notkunina einfalda. Þú kveikir á kertinu og það slekkur sjálfkrafa á sér eftir 6 klukkustundir.

Upplýsingar:

  • Hlýtt LED ljós sem flöktir eins og raunverulegur logi
  • Upprunaleg myndskreyting eftir Tove Jansson, „The Pond“
  • 6 klst. On/Off tímastillir
  • Þarf 2 × AA rafhlöður (fylgja ekki með)
  • Úr paraffínvaxi
  • Eingöngu ætlað til notkunar innandyra

Stærð: Ø 7,5 cm × H 10 cm

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent