Lidatorp Kertastjaki – Brúnn Large
Fallegur kertastjaki úr keramíki sem sameinar einfalda hönnun og fjölbreytta notkunarmöguleika. Kertastjakinn er með kertahaldara í miðjunni og skál í kring sem býður upp á ýmsar hugmyndir að skreytingum.
Hægt er að skreyta hann eftir árstíðum og tilefnum með blómum, greinum eða öðrum náttúrulegum efnivið. Skálina má einnig nota undir sætindi, hnetur, ávexti eða fallega smáhluti. Kertastjakinn nýtur sín líka vel einn og sér og færir heimilinu hlýlegan og notalegan blæ.
Upplýsingar:
-
Stærð: 21 × 21 × 5 cm
-
Handgerður úr keramíki
-
Hentar vel fyrir skreytingar og daglega notkun
-
Smávægilegar ójöfnur og punktar í áferðinni eru eðlilegur hluti af handgerðri framleiðslu og gera hvern kertastjaka einstakan
Falleg viðbót við heimilið sem skapar notalega stemningu og nýtur sín vel á öllum árstímum.








