Moomin - Together
Moomin - Together
*FORSALA - stuttur afhendingartími*
Moomin bolli – Together (3,7 dl)
Together línan er lofsöngur til vináttunnar! Vinir sjá það besta í okkur og standa með okkur í gegnum súrt og sætt. Taktu saman höndum við vini þína og eigið ógleymanlegan dag – saman.
Bollinn hentar bæði fyrir heita og kalda drykki og er fullkominn í útileguna, vinnuna eða fyrir morgunkaffið heima.
- Skemmtileg og endingagóð hönnun frá Muurla í Finnlandi
- Léttur og sterkur - nánast óbrjótanlegur stálbolli.
- Gerður úr matvælastáli með glerjungi - Emeleraður.
- Má fara í uppþvottavél en glansinn getur þó dofnað.
- Stærð 3,7 dl
Frábær gjöf fyrir alla Moomin aðdáendur – eða til að gleðja sjálfan sig.