PEAK - borðstofuborð

890.000 kr

Glæsilegt borð úr eik sem sameinar tímalausa hönnun, styrk og vönduð vinnubrögð. Borðið er hannað fyrir daglega notkun og býður upp á þægilegt pláss fyrir 10-12 manns, sem gerir það að frábærum kosti fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Þykk 4 cm eikar borðplatan gefur borðinu vandað og veglegt yfirbragð, á meðan pólýhúðaðar stálundirstöður tryggja framúrskarandi stöðugleika, endingu og nútímalegt útlit.

Vörulýsing

  • Efni: Eik
  • Lengd: 280 cm
  • Breidd: 120 cm
  • Hæð: 75 cm
  • Plötuþykkt: 4 cm
  • Undirstöður: Pólýhúðað stál, 6 × 80 × 80 mm prófíll
  • Sæti: 10-12 manns

Fallegt og endingargott borð sem verður miðpunktur borðstofunnar eða fundarrýmisins. Náttúruleg eik og stílhrein hönnun tryggja húsgagn sem stendur tímans tönn og passar vel við fjölbreyttar innréttingar.

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent