PHANTOM Frying pan 28cm

13.900 kr

PHANTOM Steikarpanna 28cm

Steikarpanna úr endurunnu steyptu áli, hönnuð af Pieter Roex fyrir BergHOFF LEO línuna. Pannan er með CeraGreen keramikhúð að innan sem er alveg PFAS-laus og viðloðunarfrí. Að utan er hún með silíkon-pólýester húðun.

Heilsteyptur botn tryggir hraða og jafna hitadreifingu og pannan hentar á öllum eldunartækjum, þar á meðal span. Handfangið er úr fenólkvoðu og er aftakanlegt, sem gerir pönnuna ofnhelda upp að 230°C (án handfangs) og einfaldar geymslu.

Eiginleikar:

  • Efni: Endurunnið steypuál
  • Húðun að innan: CeraGreen keramik, PFAS-laus
  • Húðun að utan: Silíkon-pólýester
  • Handfang: Fenólkvoða, aftakanlegt
  • Botn: Heilsteyptur (full disk base)
  • Þvermál: 28cm
  • Innanmál: 28 x 28 x 5,5cm
  • Utanmál: 51,7 x 29,3 x 9,6cm
  • Rúmtak: 2,9L
  • Þyngd: 1,36kg
  • Hentar öllum hellum, þ.m.t. span
  • Ofnhelt upp að 230°C (án handfangs)
  • Handþvottur 

14 daga skilaréttur
Öruggar greiðsluleiðir
Hægt er að sækja eða fá sent