Shell skeljaskál - large
🤍 Shell skeljaskálin frá Byon
Falleg og elegant skeljaskál sem setur stílhreinan svip á heimilið. Lífrænt form hennar og tímalaus hönnun gera hana að fallegum hlut sem nýtur sín hvar sem er.
Skálin er einstaklega fjölhæf og hentar vel undir kertasandinn okkar, en einnig fyrir skartgripi, sælgæti eða aðra smáhluti. ✨
Falleg ein og sér eða með uppáhaldshlutunum þínum – skál sem sameinar fallega hönnun og notagildi.
• Skeljalaga og lífræn hönnun
• Fjölhæf í notkun
• Tímalaus og stílhrein
• Stærð: 34 × 24 × 9,5 cm
Athugið að kertasandur fylgir ekki með 🕯️





