Skál - skógur
Räder Winter Forest – Postulínsskál
Falleg Winter Forest postulínsskál frá Räder sem færir heimilinu hlýlega og hátíðlega stemningu. Í skálinni myndast lítið jólaævintýri þar sem falleg jólatré í þrívídd skapa einstakt yfirbragð.
Skálin er úr vönduðu postulíni með fíngerðum upphleyptum smáatriðum og er falleg bæði til að bera fram uppáhaldssælgætið yfir hátíðarnar eða sem skrautmunur undir kerti, skartgripi og önnur falleg smáatriði.
Upplýsingar
- Efni: Postulín
- Hönnuður: Lisa Hampe
- Stærð: 15 × 15 × 6,5 cm
- Hönnun: Winter Forest
- Handþvottur - má ekki fara í uppþvottavél
Fallegur og tímalaus munur sem setur hátíðlegan svip á heimilið og getur orðið að dýrmætri hefð sem þú tekur fram ár eftir ár.


