Vekjaraklukka - Flip Premium Gold
Margverðlaunaða Flip vekjaraklukkan frá LEXON kemur hér í lúxusútgáfu með fágaðri, glansandi áferð úr áli. Hún sameinar vandaða hönnun og einfaldleika á einstakan hátt – fullkomin fyrir nútímalegt svefnherbergi.
Við mælum með að gefa snjalltækjunum frí frá svefnherberginu. Síminn þarf ekki að vera það fyrsta sem þú sérð á morgnana eða það síðasta áður en þú ferð að sofa – skildu hann eftir frammi og njóttu betri svefns.
Notkunin er einföld og snjöll:
Snúðu ON hliðinni upp til að virkja vekjarann og OFF hliðinni upp til að slökkva á honum. Ef þú vilt sofa aðeins lengur er nóg að snerta klukkuna til að snooza.
Klukkan er með LCD skjá sem lýsist upp við snertingu og aftan á henni eru takkar til að stilla tíma og vekjara. Áláferðin gefur henni nútímalegt, hreint og glæsilegt útlit.
✔ Snúðu til að kveikja/slökkva á vekjara
✔ Snooze með léttri snertingu
✔ LCD skjár með baklýsingu
✔ Efni: álhúðað (polished aluminum)
✔ Gengur fyrir 2 x AAA rafhlöðum (fylgja með)
✔ Stærð: 2,8 cm (hæð) x 10,2 cm (breidd) x 6,4 cm (dýpt)
Stílhrein hönnun og einföld virkni – fyrir rólegri og fallegri byrjun á deginum.




